Opnunartímar
Fréttir
23 · 05 · 2010
Lokað verður Hvítasunnudag í dag 23. maí. Aftur á móti verður opið annan í Hvítasunnu og miðast opnunartíminn við sunnudagsopnunartíma.
Gleðilega hátíð Meira ›
29 · 04 · 2010
Mánaðartilboðin eru komin aftur vegna fjölda áskoranda og verða út maí. Við erum með 7 spennandi tilboð núna Meira ›
Við sjáum um fermingarveisluna!
16 · 02 · 2010
Fagmenn Bakarameistarans hafa mikla reynslu þegar kemur að fermingarundirbúningum. Hvort sem um er að ræða heilt kaffihlaðborð eða einstaka tertu eða kransaköku þá erum við hér til þess að létta þér lífið. Meira ›
Saga fyrirtækisins
Bakarameistarinn ehf. var stofnaður í janúar 1977. Eigendur Bakarameistarans frá upphafi eru hjónin Sigþór Sigurjónsson bakarameistari og Sigrún Stefánsdóttir. Fyrsta bakarí okkar var opnað 18. febrúar 1977 í Suðurveri sem var byltingarkennt á þeim tíma enda þá algengast að finna í Reykjavík verslanir á þessu sviði sem voru eins konar bræðingur af gömlu bakaríi og mjólkurbúð.
Frá upphafi var ljóst að Bakarameistarinn myndi vera í fararbroddi því strax var farið að kynna nýjungar fyrir viðskiptavinum okkar.



