Bolludagur 2026
Úrval af rjómabollum fæst í verslunum okkar frá 31.janúar og fram að bolludegi. Úrvalið sérðu hérna á síðunni. Bolludagurinn er mánudaginn 16. febrúar.
Við tökum aðeins við pöntunum á þremur tegundum, með súkkulaðiloki, karamelluloki og jarðarberjaloki(auk tómra bolla) og það kemur ein tegund af bollum í 15 bollu öskju. Ef óskað er eftir öðrum tegundum þarf að versla þær í verslunum okkar. Engar undantekningar eru á þessu fyrirkomulagi.
-5% afsláttur ef verslaðar eru 60 bollur eða fleiri.
-10% afsláttur ef verslaðar eru 150 bollur eða fleiri.
Við biðjum alla sem hafa tök á því að sækja að gera það. Heimsending er í boði á milli kl. 9 og 12 og 11 og 14. Ekki er hægt að biðja um sérstakan tíma innan þessara marka.
Panta þarf í síðasta lagi fyrir kl. 16:00 11. febrúar.


