Fyrirtækjaþjónusta – Fundir og nestispakkar

Fyrirtækjaþjónusta

Veitingar fyrir vinnudaginn og sérstök tilefni

Bakarameistarinn býður fyrirtækjum upp á allskyns veitingar og brauðmeti, nestispakka og reglulegar pantanir. Hvort sem þú pantar fyrir lítinn fund eða stóran hóp aðstoðum við þig við að velja veitingar og magn.

Hafðu samband í síma 533 3000 eða á pantanir@bakarameistarinn.is.

Fundir og veislur

Við bjóðum meðal annars upp á brauðtertur, kaffisnittur, samlokur, veislu- og fundabakka, tertur og kökur. Veldu veitingar fyrir morgunfundinn, kaffitímann, starfsmannafögnuðinn eða móttökuna.

Skoða veislu- og fundabakka · Skoða alla veisluþjónustu

Nestispakkar fyrir starfsfólk og hópa

Við sérsníðum nestispakka að ykkar óskum og bjóðum meðal annars upp á vegan og glúteinfría valkosti. Enginn lágmarksfjöldi er fyrir nestispakka.

Sendu okkur upplýsingar um fjölda, dagsetningu og óskir á pantanir@bakarameistarinn.is.

Unnið er með ofnæmisvalda, þar á meðal glúten, í framleiðslunni og ekki er hægt að útiloka krosssmit.

Skoða nestispakka

Áskriftarpantanir

Viltu fá reglulegar pantanir fyrir vinnustaðinn? Við bjóðum upp á áskriftarpantanir. Hafðu samband við pantanir@bakarameistarinn.is til að ræða vöruúrval, magn og fyrirkomulag.

Þjónusta við hótel

Við þjónustum hótel. Hafðu samband við pantanir@bakarameistarinn.is til að fá upplýsingar um úrval, pantanir og fyrirkomulag þjónustunnar.

Jólagjafir fyrir fyrirtæki

Við bjóðum upp á jólapoka með gómsætri jólavöru fyrir starfsfólk og viðskiptavini. Sendu fyrirspurn á pantanir@bakarameistarinn.is með upplýsingum um fjölda og óskir.

Skoða jólavörur

Reikningsviðskipti

Fyrirtæki geta sent fyrirspurn um að koma í reikningsviðskipti á pantanir@bakarameistarinn.is.

Ef fyrirtækið er þegar í reikningsviðskiptum þarf að hafa samband við skrifstofuna á sama netfangi til að leggja inn pöntun á fyrirtækjareikning.

Pantanir og fyrirvari

Þú getur pantað á vefsíðunni, með tölvupósti á pantanir@bakarameistarinn.is eða í síma 533 3000.

Almennt þarf að panta með 2–3 daga fyrirvara. Fyrirvarinn getur verið mismunandi eftir vörum og kemur fram við hverja vöru. Fyrir helgar þarf að panta í síðasta lagi fyrir kl. 16:00 á fimmtudegi.

Ekki er tekið við pöntunum um helgar, hvorki í netversluninni né í gegnum skrifstofuna.

Hvaða upplýsingar þurfa að fylgja pöntun?

Til að auðvelda afgreiðslu skaltu taka fram:

  • Nafn, kennitölu og símanúmer þess sem pantar.

  • Nafn og kennitölu fyrirtækis.

  • Viðfangsnúmer, ef við á.

  • Vörur og magn.

  • Afhendingardag og tíma.

  • Hvort sækja eigi pöntunina eða fá hana senda.

  • Afhendingarheimilisfang ef óskað er eftir heimsendingu.

  • Séróskir eða upplýsingar um sérfæði.

Afhending og heimsending

Þú getur valið að sækja í Suðurver, Holtagarða eða Flatahraun. Venjulegur afhendingartími er á milli kl. 9:00 og 14:00.

Hægt er að sækja fyrr eftir samkomulagi. Suðurver opnar til dæmis kl. 5:30 virka daga og laugardaga. Hafðu samband fyrirfram til að semja um afhendingartíma.

Ef óskað er eftir að sækja í aðra verslun skaltu hafa samband við skrifstofuna. Það fer eftir umfangi pöntunar hvort hægt sé að verða við þeirri ósk.

Alla Rice Krispies-turna, kransakökur og kransakökuhorn þarf að sækja í Holtagarða nema óskað sé eftir heimsendingu.

Við bjóðum upp á heimsendingu á höfuðborgarsvæðinu á milli kl. 9:00 og 12:00. Heimsending kostar 7.900 kr. Hafðu samband ef óskað er eftir öðrum afhendingartíma.

Hafðu samband

Við aðstoðum þig við að velja veitingar og skipuleggja pöntunina.

Sími: 533 3000
Netfang: pantanir@bakarameistarinn.is

Skrifstofan er opin mánudaga til fimmtudaga frá kl. 8:00 til 16:00 og föstudaga frá kl. 8:00 til 15:00. Lokað er um helgar.

Nánari upplýsingar um pantanir og þjónustu